Forrit
Eru forrit gefin út á geisladiskum? Það er ennþá til eitthvað af eldi forritum á geisladiskum en þeirri útgáfu er að mestu hætt. Gagnvirkt efni er núna gefið út á vef og er öllum opið á www.nams.is
Námsefni
Hvað gerir Námsgagnastofnun?Námsgagnastofnun gefur út fjölbreytt námsefni fyrir grunnskóla landsins, ekki einungis kennslu- og vinnubækur heldur líka kennsluleiðbeiningar, hljóðbækur, fræðslumyndir, handbækur og ekki má gleyma öllu skemmtilega og fræðandi vefefninu okkar. Ríkið rekur stofnunina til að sjá um að ævinlega sé á boðstólum fjölbreytt efni í öllum greinum sem grunnskólar fá samkvæmt lögum afhent endurgjaldslaust. Þetta er því stórt útgáfufyrirtæki. Á hverju ári dreifum við rúmlega 800.000 eintökum af námsefni til skólanna og er þá ekki tekið inn í dæmið allt rafræna efnið sem er gefið út í auknum mæli á heimasíðunni okkar www.nams.is. Í stuttu máli er því hlutverk okkar námsefnisútgáfa og dreifing efnisins til grunnskóla landsins og lítum við fyrst og fremst á okkur sem þjónustustofnun við þá, kennara og nemendur.
Hvar get ég skoðað námsefni Námsgagnastofnunar? Allt námsefni stofnunarinnar er til sýnis í Bókasafni Menntavísindasvið HÍ við Íslands við Stakkahlíð. Við erum ekki með verslun nema á Netinu og þess vegna ekki með neinar bækur til sýnis hjá okkur nema á heimasíðunni.
Hvernig finn ég fræðslumyndir á vefnum? Smella á hnappinn námsefni á forsíðunni, á síðunni sem kemur upp þarf að velja námsgrein eða allar námgreinar í listanum til vinstri. Þegar valið efni kemur upp þá birtist listi til hægri þar sem hakað er við fræðslumyndir. Nú ættu þær að koma upp.
Hvernig finn ég hljóðbækur á vefnum?
Smella á hnappinn námsefni á forsíðunni, á þeirri síðu þarf að velja námsgrein eða allar námgreinar í listanum til vinstri. Þegar valið efni kemur upp þá birtist listi til hægri þar sem hakað er við hljóðbækur og smellt á leita. Nú ættu hljóðbækur og hlustunarefni koma upp.
Nota allir skólar eingöngu námsefni frá stofnuninni?Ekki endilega. Viðskipti skólanna við okkur fara fram á grundvelli kvóta sem reiknaður er út með hliðsjón af fjárveitingum og nemendafjölda og aldurssamsetningu hvers skóla. Skólinn metur svo hvaða námsefni er talið brýnast að panta. Skóla geta einnig keypt námsefni frá öðrum útgefendum.