Námsefni

Um forrit

Fingrafimi og Fingraleikir

Þeir sem nota Chrome vafrann hafa lent í vandræðum með séríslenska stafi í þessum forritum. Chrome vafrinn er með sinn eiginn Flash-spilara. Þessi spilari meðhöndlar lyklaborðið í Flash-forritum ekki rétt að því er varðar séríslenska stafi (og reyndar fleiri stafi). Til að geta notað forrit eins og Fingrafimi og Fingraleiki þar sem verið er að æfa þessa stafi þarf að gera Flash spilarann frá Chrome óvirkan og nota spilarann frá Adobe. Hér eru leiðbeiningar.
 

Tákn með tali

Uppfærsla á forritinu. Sækja uppfærslu.

Lestur og stafsetning 1.5

Uppfærsla á forritinu í útgáfu 1.52 . Sækja uppfærslu.

Svona vinna tækin og Undur líkama míns

Uppfærsla fyrir forritin til að keyra á Windows XP. Sækja uppfærslu.

Að keyra eldri forrit í Windows XP

Nokkur forrit Námsgagnastofnunnar voru hönnuð til að keyra á stýrikerfinu Windows 95. Síðan þá hafa átt sér stað þó nokkrar breytingar á stýrikerfum frá Windows. Það á að vera hægt að keyra forritin á Windows2000/XP með smávægilegum breytingum í tölvunni.

    1. Ferð í möppuna á harða disknum á tölvunni
    2. Hægrismellir með músarbendli á .exe skjalið
    3. Velur þar "properties" - og smellir á flipann "Compatability"
    4. Undir liðnum Compatibility mode skaltu  haka við "Run this program in compatibility mode for:" og
    5. Velja úr felliglugganum "Windows 95" og "Apply" og loks "OK".

Hvernig á að láta Windows XP keyra forritið sem Windows '95 (myndband)

 Uppsetning á Ritfinni á innra neti skóla.

    1. Keyra Server-uppsetningu á netvél. Þá verður til mappa sem heitir Ritfinnur Server.
    2. Þessi mappa verður að vera á „möppuðu drifi", þ.e. hafa bókstaf.
    3. Í þeirri möppu forrit sem heitir RitfinnurManagementModule. Það er m.a. notað til að búa til hópa fyrir nemendur.
    4. Þar er líka Ritfinnur-Installation.exe. Það er notað til að setja Ritfinn upp á útstöðvum.
    5. Farið er á hverja útstöð og keyra þetta forrit af server.
    6. Á Ritfinnur-Server er mappa sem heiti Users.
    7. Hægrismella á hana og velja Searing and Security.
    8. Velja flipann Security.
    9. Velja Authenticated User.
    10. Hann þarf að hafa Full control.

Pdf skjal til útprentunar.

Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi