Pistlar
Geta þau ekki bara lesið almennilegar bækur? Unglingabókin og sérstaða hennar.
Erindi sem Ragnheiður Gestsdóttir flutti á bókakaffi IBBY haustið 2012
Meira ...
Lestrarlandið – Lestrarkennsluefni fyrir byrjendur – Sylvía Guðmundsdóttir
Titill þessa námsefnis, Lestrarlandið, vísar í landið þar sem lestur opnar sýn, þekkingu og upplifanir en meginmarkmið efnisins er að kenna börnum sem eru að hefja grunnskólanám lestur. Athygli er beint að heiti og hljóðum bókstafanna ásamt öðrum byrjunaratriðum í lestri eins og að þekkja algeng smáorð. Við gerð efnisins var lögð áhersla á að námsefnið næði til allra þátta lestrarnámsins; hljóðavitundar, umskráningar, þ.e. að tengja bókstafi og hljóð þeirra saman svo úr verði orð, lesfimi, orðaforða, lesskilnings og ritunar. Jafnframt var lögð áhersla á að það mætti koma til móts við mismunandi aðferðir og áherslur í lestrarkennslunni.
Meira ...
Auðlesið efni – við hvað er átt? – Sylvía Guðmundsdóttir
Með auðlesnu efni er átt við efni sem einkum er ætlað hæglæsum nemendum. Um er að ræða fjölbreytilegan hóp með tilliti til þroska, reynslu og getu. Flestir eiga þó sameiginlegt að hafa takmarkaðan málþroska og málskilning og getu til að yfirfæra reynslu og þekkingu.
Meira ...
Hljóðbækur með almennu námsefni – Sylvía Guðmundsdóttir
Hljóðbækur með almennu námsefni eru ætlaðar sjónskertum og blindum nemendum og nemendum sem eiga við svo mikla lestrarerfiðleika að etja að þeir geta ekki lesið námsbókina hjálparlaust. Í mörgum tilvikum geta þeir hins vegar tileinkað sér námsefni með því að hlusta á sömu blaðsíður og aðrir nemendur lesa.
Meira ...
Hljóðbækur til lestrarþjálfunar – aðferð sem hentar mörgum – Sylvía Guðmundsdóttir
Hljóðbækur til lestrarþjálfunar byggja á aðferð sem felst í því að nemandinn fylgist með í bókinni um leið og hann hlustar á textann lesinn. Hljóðbókina skal því ávallt nota með bókinni. Þessi aðferð hefur reynst vel mörgum hæglæsum nemendum sem þurfa mikla þjálfun til að auka lestrarleiknina.
Meira ...
Mat á námsgögnum – Þorsteinn Helgason
Þó að úrvalið sé lítið á Íslandi getur verið gott að taka sér tíma til að meta það efni sem er á boðstólum. Stundum er um fleira en eitt að ræða, stundum þarf að ákveða hvort vert sé að skipta um og reyna nýtt efni og alltaf er gott að átta sig á því hvers eðlis þau námsgögn eru sem kennarinn er með í höndunum.
Meira ...
Pistill um lestrarefni – Sylvía Guðmundsdóttir
Á síðasta áratug hefur útgáfa Námsgagnastofnunar á lestrarefni stóraukist, þ.e. á efni sem hefur það markmið að þjálfa nemendur á ólíku aldursstigi í lestri, að ýta undir lesskilning, gagnrýnan lestur og lestraráhuga. Í þessari grein Sylvíu Guðmundsdóttur er samantekt á lestarefni sem Námsgagnastofnun gefur út og einkennum þess. Byggt á grein í Skímu 2. tbl. 33. árg. 2010.
Meira ...
Einstaklingsmiðuð kennsla – Aldís Yngvadóttir
Áhersla á einstaklingsmiðaða eða fjölbreytilega kennsluhætti hefur vaxið mjög á undanförnum árum. Þessa áherslu má meðal annars rekja til kenninga um fjölgreindir og námsstíla og aukinnar þekkingar á því hvernig mannsheilinn starfar og lærir.
Meira ...