PDF bækur

Námsgagnastofnun hefur sett upp svæði þar sem finna má námsefni á pdf-formi. Skólar geta sótt um aðgang að svæðinu ef nemandi eða nemendur geta ekki nýtt sér almennt efni án slíkrar aðlögunar.

Hafa skal í huga að markmið þessarar þjónustu er að gera nemendum með fatlanir og námserfiðleika kleift að nota tölvu til að nýta sér námsefni, hún er ekki opin öllum nemendum skólanna. Umsjónarmaður sérkennslumála sem telur að þessi þjónusta komi þeirra nemendum að gagni sendi tölvupóst til gurry@nams.is til að fá nánari upplýsingar og aðgang að pdf skjölunum.

Til þess að geta notað námsbækur á pdf formi þarf  forritið  Foxit Reader, það er fríforrit sem gerir nemendum m.a. kleift að nota tölvur til að skrifa inn í vinnubækur.  Forritinu er hægt að hlaða niður af slóðinni: http://www.foxitsoftware.com/downloads/index.php

Upplestrar forrit eins og Ivona Reader og EasyTutor er einnig hægt að nota með Foxit Reader forritinu.

TMF Tölvumiðstöð,  www.tmf.is heldur námskeið í notkun ýmissa forrita sjá nánar á síðu TMF undir Námskeið.


Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi