Pistill
Í dagsins önn - Pistill
TAKA 2012
Það var mikil spenna og góð stemmning í Bíó Paradís 3. maí sl. en þá fór fram stuttmyndasamkeppnin TAKA 2012. Á áttunda tug mynda bárust í keppnina frá grunnskólanemum í Reykjavík og er það metþátttaka en keppnin hefur verið haldin árlega síðan 1981. Góð þátttaka ber vott um mikla grósku og áhuga barna og unglinga á kvikmyndalistinni, en kvikmyndagerð í grunnskólum hefur verið vaxandi valgrein síðustu áratugi.
Keppt var í flokki hreyfimynda, heimildamynda og leikinna stuttmynda og voru verðlaunin í formi áritaðs klapptrés og viðurkenningarskjals. Í dómnefnd sátu nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands. Hér má sjá þá sem áttu myndir í 1. sæti:
Stuttmynd (eldri flokkur): Sá á fund sem finnur, eftir nemendur úr Austurbæjarskóla; Álfgrím Aðalsteinsson, Birtu Hugadóttur, Höllu Heimisdóttur, Kristrúnu Kristjánsdóttur og Sóleyju A. Benónýsdóttur.
Heimildamynd (eldri flokkur): Átröskun, eftir nemendur úr Hlíðaskóla; Elínu Sif, Sögu Matthildi, Victoríu, Mörtu og Jóhönnu.
Hreyfimynd (eldri flokkur): Þrír afskaplega brenglaðir, eftir nemendur úr Háaleitisskóla; Ásvald S. Guðmundsson, Eyþór E. Gunnlaugsson og Jóhann J. Salbergsson.
Stuttmynd (yngri flokkur): Gámaborgin, eftir nemendur úr Dalskóla; Auði E. Gunnarsdóttur, Aron Ólafsson, Bergman D. Kristjánsson, Jasmin Fortes Traustadóttur, Egil Kristjánsson og Karen S. Rafnsdóttur.
Hreyfimynd (yngri flokkur): Tyrkjaránið, eftir nemendur úr Hlíðaskóla; Brodda Gunnarsson og Dag Stein Magnússon.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir svokallað Písa Keik-verkefni. Það var unnið í samstarfi skóla og félagsmiðstöðva til að hvetja unglinga til að gera sitt besta á PISA-prófunum. Nemendum í 10. bauðst að senda inn verk í formi stuttmyndar, lags, ljósmyndar eða texta sem svaraði spurningunni: „Hvers vegna finnst þér mikilvægt að gera þitt besta?“
Magnús Jóhann Ragnarsson í 10. bekk fékk bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir Písa Keik- verkefni, en það var stuttmynd þar sem hann lét ljós sitt skína.
Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju!
