Fréttir

skjaldarm
skjaldarm

Ráðherra opnar vefsíðu í dag

11.11.2009

Efnið er þríþætt: Þemahefti, fræðslumynd og vefsíða.

Þemaheftið CO ₂ – framtíðin í okkar höndum, sem Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur tekið saman, fjallar um breytingar á loftslagi á jörðinni. Leitast er við að skoða orsakir þeirra út frá sveiflum í veðurfari, náttúruhamförum og afskiptum mannsins og hvaða áhrif loftslagsbreytingar geta haft í framtíðinni. Fjallað er um gróðurhúsaáhrifin á myndrænan hátt og skoðað hvað gert er á alþjóðlegum vettvangi til að reyna að draga úr áhrifum mengunar á jörðinni. Hver opna í bókinni fjallar um afmarkað efni sem gefur kennurum aukna möguleika á því að velja ákveðin viðfangsefni til umfjöllunar. Heftið er væntanlegt í janúar.

Fræðslumyndin Gróðurhúsaáhrif – loftslagsbreytingar og hlýnun jarðar, fjallar um veðurfarsbreytingar sem hafa orðið á jörðinni, m.a. með rannsóknum á Suðurskautslandinu. Fjallað er um gróðurhúsaáhrifin og hver ábyrgð mannsins er á auknu magni gróðurhúsalofttegunda í lofthjúpnum. Að lokum er farið yfir afleiðingar hlýnunar á jörðinni, verði ekkert að gert. Þýðandi er Hálfdan Ómar Hálfdanarson og þulur Jóhanna Guðrún Arnardóttir.

Á vefsíðunni CO ₂ – framtíðin í okkar höndum, verða meðal annars kennsluleiðbeiningar sem Helgi Grímsson skólastjóri tekur saman, krækjur og myndefni, auk verkefna sem hægt er að vinna í tengslum við efni fræðslumyndarinnar. Hana er hægt að nálgast til sýninga á vefsíðunni, auk þess sem hún verður gefin út á DVD. Kennaraefnið kemur út vorið 2010.

Ritstjóri verksins er Sigríður Wöhler en grafíska vinnslu og umbrot annaðist PORT hönnun.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar