Námsefni
Að vaxa úr grasi 2 – Kennaramappa
Að vaxa úr grasi er heildstætt námsefni í lífsleikni ætlað fyrsta til fimmta bekk grunnskóla. Í þessari möppu sem ætluð er öðrum bekk er að finna handhægar kennsluleiðbeiningar og vegvísi fyrir kennara. Hugmyndir eru um leiki eða orkugjafa og samþættingu við íslensku og aðrar greinar. Efnið skiptist í fimm einingar: Þær heita: Að byggja upp skólasamfélag; Að vinna saman; Að taka gagnlegar ákvarðanir; Að lifa heilbrigðu lífi og Þú og ég – Við erum frábær. Vinnuhefti, Allir saman, fylgir hverri einingu. Heftunum er m.a. ætlað að vera vettvangur samvinnu milli heimilis og skóla.
Námsefnið er í flokki Lions-Quest námsefnis. Skilyrði fyrir notkun þess er að sækja sérstakt námskeið. Vakin er athygli á að þeir sem þegar hafa sótt námskeiðið Að ná tökum á tilverunni öðlast sjálfkrafa rétt til að nota hið nýja efni Að vaxa úr grasi.
Eingöngu úthlutað til skóla.