Átta-tíu 5
Átta-tíu 5 er í námsefnisflokki í stærðfræði fyrir unglingastig. Bókin skiptist í átta kafla sem heita; rúmfræði og algebra, tölur og talnafræði, líkur, reikningur og algebra, Pýþagóras, líkön, algebra og jöfnur og dulmálsfræði. Í Átta-tíu 5 er fengist við viðfangsefni stærðfræðinnar á fjölbreyttan hátt. Kennsluleiðbeiningar, lausnir og ítarefni með bókaflokknum má finna á vefnum Stærðfræði fyrir unglingastig.