Táknmál

Tákn með tali 2 – Orðabók

Orðabók með táknmyndum sem notaðar eru í boðskiptakerfinu Tákn með tali en TMT er tjáningarform ætlað heyrandi fólki sem á við verulega mál- eða talörðugleika að stríða. Þetta er endurskoðuð útgáfa með viðauka á efni sem kom út 1998, mörgum nýjum táknum hefur verið bætt við. Orðabókin skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er sagt frá uppbyggingu og tilgangi TMT ásamt ábendingum um innlögn og þjálfun. Í seinni hlutanum er táknasafnið sjálft, alls 790 táknmyndir sem raðað er í nítján efnisflokka. Heimilt er að ljósrita táknmyndirnar.
Námsgrein
Táknmál
Vörunúmer
5847
Aldursstig
Yngsta stig, miðstig, unglingastig
Útgáfuár
2005
Höfundur
Björk Alfreðsdóttir og Sigrún Grendal. Táknmyndir: Sigurborg I. Sigurðardóttir
Myndefni
Þóra Sigurðardóttir
Tákn með tali 2 – Orðabók

Setja í körfu

6.873 kr.


Úthlutunarverð til grunnskóla, sjá læst svæði fyrir kennara

 
Byggir á LiSA CMS. Advania - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi